Festive Kind Of People**english below
Það hefði ég nú haldið…..hér úti eru svona festivöl alveg gríðarvinsæl…..síðustu daga fórum við á tvö slík. Það fyrra var haldið rétt fyrir utan Búdapest. Það var haldið í svona litlu þorpi….svona eins og Hornafjörður…..fallegt og vinalegt….þegar við mættum þangað þurftum við að ákveða hvort við vildum fá okkur að borða þarna á svæðinu….þar voru hlunka-pulsur í boði og eitthvað að víni að sjálfsögðu…en þá stakk Balázs upp á að við myndum borga okkur, 14.000.forintur….sem eru tæpar 5.000kr sem þykir MIKIÐ hérna úti….. inn á vínekru þarna í grenndinni…við samþykktum þetta á staðnum…enda lofaði B okkur að við fengjum að borða og drekka eins og við gætum….og engar pulsur eins var verið að brasa þarna…(set inn myndir af herlegheitunum)….heldur steikur og fín vín….sú varð heldur betur raunin og hef ég sjaldan eytt peningum jafnviturlega í áfengi……..og mat….þetta var frábær upplifun….hittum eigandan og framkvæmdarstjórann….sem þekktu B….farið með okkur eins og kóngafólk…..svo skrifaði ég í gestabókina á íslensku…þakkaði fyrir matinn og fleira….næsta sem gerðist var að kærasta eigandans birtist….þekkti íslenskuna og koma í ljós að hún hafði búið í Vestmannaeyjum í tvö ár hérna í denn…..Fórum svo á okkar annað festival í kastalahverfinu…..nú á Pálinka (innlendur snafs…fer ekki undir 45%…að ég held) og sausage festival….þarna vorum allir þessir básar með skot og mat…..og eins og sönnum Íslendingum sæmir smökkuðum við eins og þetta væri síðasti smakkdagur í heiminum….endaði með því að við vorum orðinn leið á því að standa í röðum og keyptum okkur bara flösku af góða stöffinu….kvöldið endaði svo í hvílíkri gleði á Westbaulken….þar sem var hoppað og dansað…..man svo ekki alveg meir….en allavega var skemmtilegt.
Málsháttur dagsins er :Minkar eru bestu skinn.
Festivals seems to be a common thing here in Hungary….and for the last few days we went to two of those festivals. The first one was right outside of Budapest…..in this little town….kinda like the beautiful Hornafjordur……when we got there….we had to decide wether we ate at the “market place” were all the sausage and meat was….or to pay us into this vineyard…(14.000.forints…about 80.dollars…)…this was agreed on the spot…..Balázs had promised good food and fine wine as we could eat and drink…..Oh how that´s was true….money well spent….we met the owner…manager….treated like royalties….I wrote in the guest book in Icelandic….and the next thing I knew….the owner´s girlfriend recognized the icelandic…and we got to know that she lived in Iceland for two years…..The next festival was in the castal district…..it was a Pálinka and sausage festival…and like true Icelanders we got a bottle instead of one shot at a sale stand….after the other…..this night ended with loads of fun….went to WB…(westbaulken)….hopped and danced….drink some more….then my memory started to collapse…..but it was loads of fun….happy times…
Proverb of the day is : Happiness is the wine that sharpens the taste of the meal.

Sælir drengur
Bara að kasta kveðju á þig vinur. Nú á Laugardaginn er Viktor “superstar” að fara á sína fyrstu fótboltaæfingu. Ég mun að sjálfsögðu vera stoltasti pabbinn með cameruna hátt á lofti svo Eyþór “tækli” frændi missi nú ekki af neinu.
En þetta var nú aldeilis glæsilegt matarboð fyrir aðeins 5.000.kr. Vona að þið skemmti ykkur vel þarna úti og njótið þess að vera ung og vitlaus. Að vísu þarf ég ekkert að vona, maður sér hvað það er gaman hjá ykkur enda er maður grænn af öfund á köflum.
Pís out little brother.
Kveðja HT
Það er nú gott þið getið drukkið vel í útlandinu…
Væri maður til í að vera með kónginum þarna úti!!
Jæja…. nú eru bara tveir slassj þrír dagar… vúhúúúú
Sæll vinur, Marmaris færslan er kominn inn..